uppruni hunda
Hundar eru afkomendur úlfa sem voru tamdir fyrir um 15.000-100.000 árum síðan. Rannsóknir benda til þess að hundar hafi fyrst verið tamdir í Austur-Asíu, hugsanlega í Kína, fyrir um 100.000 árum síðan og að fyrstu mennirnir sem fóru til Norður-Ameríku hafi haft með sér hunda frá Asíu. Hundar eru því sennilega fyrsta dýrategundin sem mönnum tókst að temja. Rannsóknir benda einnig til þess að síðan hundar voru fyrst tamdir hafi þeir verið tamdir aftur á mismunandi tímum á ólíkum stöðum í heiminum. Þá hafi hundar breiðst út um jörðina með manninum